Jæja þá er nú bara að koma hlaupárs dagur, eða kominn hjá ykkur á Íslandi. Svo til hamingju með brúðkaups afmælið Hafsteinn og Hulda

Hérna er búið að vera nóg að gera síðan síðast, strákurinn var veikur í rúma viku, hiti, hor, hósti og eyrnabólga. En eftir 5 daga af dreng sem svaf ekkert og borðaði varla eða drakk þá fór ég með hann til læknis og við fengum lyf til að hjálpa og strax daginn eftir var hann orðinn betri og nokkrum dögum seinna gátum við aftur farið að fara í ræktina og út að labba, Kristian og mömmu hans til mikillar hamingju, vorum orðin hundleið á að hanga inni.
Og talandi um Kristian, er búin að setja inn nýjar myndir og komið nýtt útlit á síðuna hans svo endilega kíkið, karakterarnir á síðunni eru frá uppáhalds þættinum hans Kristian
"The Backyardigans" þetta eru einu þættirnir sem hann nennir virkilega að horfa á og dansar og syngur með.

Og já það er komin byssa á heimilið

ég veit ég veit ég sé allveg alla Íslendingana draga djúpt andann, en þetta er víst fyrir heimilisöryggið. Og miðað við nágrannana hérna til hægri við mig og fólkið sem heimsækir þau þá finnst mér öruggara að hafa eitthvað til að verja mig (sjá gamalt blogg um það þegar þau voru handtekin fyrir dópsölu og hvað annað). Ég fór náttúrulega á námskeið til að læra að nota þetta dæmi og stóð mig voðalega vel, við verðum náttúrulega að hafa leyfi fyrir þessu og allt að vera skráð og löglegt. Og engar áhyggjur, þetta er læst í tösku sem er barnheld og sett þar sem K nær ekki í hana og engin nema við vitum hvar hún eða lykillinn er. En nú er farið annað slagið og æft sig í skotfimi, manni líður eins og einhverjum "bad ass" úr bíómyndunum með skambyssu í höndunum (sjá mynd). Og áður en þið farið að sjokkerast eitthvað mikið, hvað voru mörg ykkar með haglabyssur eða riffla inn á heimilum ykkar þegar þið voruð yngri eða eruð með núna?? Flest sem bjugguð eða búið upp í sveit er það ekki.
Nú svo eru það nýji fjölskyldu meðlimurinn, hann heitir Remy er fæddur 17.des. 2007 og er mini pulsu hundur (miniature dachshund). Hann kom hingað 14. feb og er að mestu "house trained". . . . . að mestu. Hann sefur í búrinu sínu sem er voðalega gott, maður segir bara góða nótt og breiðir yfir búrið og það heyrist ekkert í honum nema hann þurfi að fara að pissa (og þá fer Dennis á fætur til að sjá um það).
En það er enn barátta að kenna honum að fara út þegar hann þarf að gera eitthvað, eða að nota þar til gerða "puppy pads" og það er að gera mig allveg brjálaða.

Hef bara ekki orku eða þolinmæði eða tíma til að vera að elta hann um allt húsið til að ná honum þegar hann er að gera stykkin sín eða pissa svo að ég geti sýnt honum að svoleiðis eigi ekki að gera inni. Dennis sér allveg um þetta þegar hann er heima vakandi, sem er svona 4 klst á dag á virkum dögum, svo ég dreg djúpt andann mörgum sinnum og tel uppá 1000 (já þúsund) og reyni að halda þetta út þangað til hann er þjálfaður.
Annars er hann voðalega sætur og góður hvolpur, ofsalega rólegur yfirleitt og finnst gaman að kúrast. Hann elskar Kristian sem finnst Remy líka voðalega sætur og hann er voðalega spenntur fyrir Cringer sem er aftur á móti ekkert hrifin af þessum hvolpi sem er alltaf að reyna að þefa af honum og leika við hann, og hann hefur að mestu bara forðast þennann hvolp. En Cringer er líka forvitinn og fylgist voðalega vel með þessu nýja fyrirbæri og vogar sér annað slagið nær, en að mestu hundsar

hann hundinn bara.
Það eru myndir hérna inn á blogginu og líka inn á
http://6ytink.spaces.live.com/Ég ætla að fara að sofa núna, endilega segið hæ og ég læt heyra aftur frá mér bráðum.